Vaknaði hálf slappur í morgun, magakveisa eða þess líkt. Birna var í fríi til hádegis en ég hékk í bælinu þar til hún var farin í vinnuna og drattaðist þá á lappir og fór með hundinn út í göngutúr.
Þótt Vaskur væri búinn að væla lengi í mér að koma út var nú meginmarkmiðið að athuga hvort ég myndi hressast við að fara út. Ekki var það nú raunin, a.m.k. skánaði ég ekkert að ráði. Seinni partur dagsins fór nú mest í að hafa ofan af
dótturdótturinni meðan mamman gerði herbergið þeirra íbúðarhæft að nýju.
24.11.08
23.11.08
Vel heppnuð árshátíð að baki
Ekki er hægt annað en vera ánægður með árshátíð HF sem haldin var á Hótel Selfossi í gærkvöldi. Maturinn var sérlega vel heppnaður ef miðað er við fjölda eins og þarna var. Í forrétt var reykt andabringa, í aðalrétt var boðið upp á Íslenskt lambakjöt eins og það gerist best og svo var súkkulaðikaka með kaffinu.
Starfsmenn voru duglegir að troða upp með heimatilbúin skemmtiatriði og mátti þar sjá nýjar hugmyndir í markaðsmálum, s.s. nýjar tillögur að heimasíðu fyrirtækisins. Hugtakið 50% starfshlutfall öðlaðist alveg nýja vídd í meðförum skemmtikrafta og loks kom á sviðið æði galdrakonuleg manneskja sem augljóslega naut aðstoðar að handan og kom þar ýmislegt í ljós sem fólk vissi ekki áður.

20.11.08
Tiltekt
Ég verð nú seint talinn til stórbloggara. Löng hlé á iðjunni hafa orðið til þess að bloggsíður hafa hætt starfsemi og þar með hafa færslur glatast. Gleymd aðgangs- og lykilorð koma einnig við sögu í þessu sambandi;-)
Stundum kemur það þó fyrir að ég rekst á gamlar færslur sem mig langar til að halda upp á og þetta er ein tilraun til þess. Ég ætla sem sagt að reyna að setja á einn stað (ef það er hægt) þær hugrenningar sem ég hef einhvern tímann séð ástæðu til að festa á bloggsíðu og sjá svo hvort ég hef eitthvað meiri stöðugleika nú til að blogga áfram en ég hafði þá............

10.11.08
Kominn heim ;-)
Jæja.
þá er maður kominn heim, útskrifaður af 10-E, að nýju og vonandi, vonandi verður þessi dvöl lengri en hinar fyrri.
þá er maður kominn heim, útskrifaður af 10-E, að nýju og vonandi, vonandi verður þessi dvöl lengri en hinar fyrri.
5.11.08
Nýjasta þróun
Nýjustu sneiðmyndir frá 4/11 bornar saman við myndir fræa 15/8 sýna aukningu á fyrirferð hægra megin. Meinið hefur heldur versnað enda lítil lyfjameðferð verið í gangi. Hnútar í kviðvegg lóðrétt eru stærri en síðast. Virðist líka liggja í kviðvegg hægra megin.
10.10.08
Fréttirnar sem áttu að vera allt aðrar...
Ég man að ég vaknaði upp í einhverju undarlegu andrúmi, get ekki líst því almennilega. Á líklega eftir að breyta þessu bloggi nokkrum sinnum því ég er að uppgötva a ðég hef aldrei hugsað þetta til baka. Er að rifja þetta upp í fyrsta skipti og það er ekki neit smá skrítið.
Ég var eiginlega ekkert alveg viss hvar ég var eða í hvaða ástandi en ég man að eftir að ég hafði séð andlitin í kring um mig vissi éga a.m.k. hver árangurinn hefði verið a f uppskurðinum. Það fór ekkert á milli mála. Man ekki hvort það var Birna (heldaþað samt örugglega) eða mamma sem sagði mér að ekkert hefði verið hægt að gera og þeir hefðu lokað skurðinum aftur mjög fljótlega.
.
.
.
.
.
.
Og ég fékk svo ekki einu sinni nema hálft Benz logo eftir allt saman;-(

10.3.08
Stóri dagurinn
Vakinn af værum, draumlausum svefni kl. 6:20 til að fara í sturtu. Staulaðist hálf rykaður eftir svefntöfluna og sturtaði mig. Fór svo í þennan stórkostlega kyrtil sem er opinn að aftan og fór aftur inn á stofu. Hjúkka kom með svona stífa sjúkrasokka, ekki ósvipaða eins og ég hef verið að kaupa í Miðbæ á Háaleitisbrautinni og eiga að vera svo góðir fyrir flug og aðrar langferðir. þessir sokkar ná alveg upp í nára og eru sérstaklega SEXÝ! Mér skilst að ég eigi að bíða til kl. 8:00. Þá á ég víst að fá aðra svefntöfluf sem gerir mig sljóan meðan verið er að gera mig kláran fyrir uppskurðinn, rakstur og fleira þess háttar. Gleymdi alveg að biðja liðið að raka á mér bakið í leiðinni;-) Ég man samt eftir að Ian Tate, sá frábæri læknir og manneskja, kom til mín þar sem ég lá á skurðarborðinu og lýsti fyrir mér skurðinum. Hann sagðist skera frá bringubeininu beint niður að naflanum og þaðan í skálagðan vinkil til hægri. Oft vantaði meira pláss til að fletta líffærum við (hmmm.)og þá skæri hann sams konar vinkil til vinstri og þá væri komið nánast fullkomið Merzedec- logo. Ég sagði honum að þetta kæmi sér vel því ég væri Benz eigandi og hvort ég þyrfti nokkuð að að greiða aukalega fyrir að fá fullt logo. (Svona getur maður fíflast þótt ég væri algjörlega að detta í óminnisheiminn. Það síðasta sem ég heyrði Mr. Tate segja áður en ég sofnaði var, "no pay, it comes as a complementary "Enn og aftur er það fjölskyldan sem lætur tilfinningarnar og tárin flæða. Legg nú allt mitt traust á þessa frábæru lækna og hjúkrunarlið OG GUÐ.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)